Kirkjulundur 6, 210 Garðabær
62.400.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
72 m2
62.400.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
47.450.000
Fasteignamat
55.750.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega og vel skipulagða 2ja herbergja 72,6 fermetra íbúð á jarðhæð með verönd til suðvesturs í eftirsóttu og vel staðsettu fjölbýlishúsi með lyftu við Kirkjulund í Garðabæ.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Lýsing eignar:

Forstofa, flísalögð og rúmgóð með fataskápum.
Hol, parketlagt.
Stofa, stór, parketlögð og björt með útgengi á hellulagða verönd til suðvesturs og þaðan á lóð.
Eldhús, innaf stofu, parketlagt og með fallegum hvítum + beykiinnréttingum með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, nýleg innrétting, flísalögð sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi, parketlagt og rúmgott með fataskápum.

Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
Húsið að utan lítur vel út og aðkoma að eigninni er góð með stóru malbikuðu bílaplani með fjölda bílastæða.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað miðsvæðis í Garðabæ þaðan sem stutt er í alla þjónustu á Garðatorginu.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.