Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu 90,5 fermetra 3ja herbergja íbúð á miðhæð hússins nr. 106 við Þórunnarstræti á Akureyri. Sérinngangur er í íbúðina. Þrjár íbúðir eru til sölu í húsinu.
Eignin er vel staðsett í göngufæri við miðbæinn og stutt er í sundlaug Akureyrar.Lýsing eignar:
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.Forstofa, flísar á gólfi.
Gangur, með fataskáp. Parket á gólfi.
Eldhús, með viðarinnréttingu og flísum á milli skápa. Korkur á gólfi.
Tvö svefnherbergi, bæði rúmgóð og bæði parketlögð..
Stofa, rúmgóð. Parket á gólfi.
Baðherbergi, með lítilli innréttingu og upphengdu salerni. Flísalagt í gólf og veggi.
Húsið hefur verið endurnýjað að miklu leyti á síðustu árum:- Nýjar inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn.
- Nýr brunnur í lóð og frárennslislagnir í lóð eru nýjar
- Nýr ljósleiðari
- Inntaksrör hafa verið lögð í bílskúr
- Húsið var málað að utan og innan árið 2024
- Þakrennur og niðurfallsrör yfirfarin og endurnýjuð árið 2024
- Þakjárn var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er í lagi
- Raflagnir og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta
- Ný rafmagnstafla fyrir allar íbúðir + fyrir allt húsið (í sameign)
- Ný inntaksgrind fyrir vatn
- Ný hitalögn í bílaplani
- Búið er að jarðvegsskipta allt í kringum húsið og drena
- Nýsteypt bílaplan og nýsteyptar gangstéttar
- Nýjar svalir á efri hæð + ný handrið á efri og neðri svölum.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]