Árskógar 8, 109 Reykjavík
87.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
94 m2
87.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1993
Brunabótamat
58.520.000
Fasteignamat
71.100.000
Opið hús: 10. júlí 2025 kl. 12:15 til 12:45.

Árskógar 8 - Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 13. og efstu hæð með aukinni lofthæð og einstöku útsýni ásamt stæði í upphitaðri bílageymslu. - Opið hús fimmtudaginn 10 júli frá kl. 12.15-12.45- Verið velkomin

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir mjög fallega, og vel skipulagða 94,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 13. og efstu hæð með aukinni lofthæð og einstöku útsýni  ásamt stæði í upphitaðri bílageymslu og sérgeymslu í þessu eftirsótta húsi fyrir eldri borgara við Árskóga 8 í Reykjavík. Samkvæmt fasteignayfirliti er íbúðin 89,4 fermetrar og geymslan 4,8 fermetrar.
Nýlega er búið að endurnýja öll gler í gluggum, alla ofna íbúðar og setja nýtt parket. Einnig var heitavatnsinntakið ásamt vatnsgrind endurnýjað á síðasta ári.

Mynddyrasímakerfi og neyðarhnappakerfi er í húsinu. Tvær lyftur eru í húsinu nr. 8 og íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.

Boðið er upp á mikla þjónustu í húsinu. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar er með félagsstarf í húsinu í salarkynnum, sem innangengt er í á opnunartíma. Einnig er fótaaðgerða og hárgreiðslustofa starfrækt þar. Sameiginlegur matsalur er á jarðhæð og þar er boðið upp á heitan mat í hádeginu. Sameiginlegur veislusalur er í tengibyggingu milli Árskóga 6 og 8 á jarðhæð og sameiginleg salarkynni fyrir félagsstarf.  Lóðin er fullfrágengin með nægum bílastæðum, rafhleðslustöðvum og góðri aðkomu. Auk þess er púttvöllur á lóð hússins.  Íbúðin er ætluð fyrir 60 ára og eldri, sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara. Húsvörður er i byggingunni.


Lýsing eignar:
Inngangur, sameiginlegur, snyrtilegur og rúmgóður, með flísum á gólfi og rafhurðaopnun.
Forstofa/hol, parketlagt og rúmgott með fataskápum upp í loft.
Þvottaherbergi, flísalagt, með innréttingu undir vélar, skápar, hillur og vaskur. Þvottavél og þurrkari fylgja með ef vill. 
Herbergi, parketlagt og með fataskápum. Fallegur útbyggður gluggi er í herbergi.
Baðherbergi, rúmgott með flísalögðu gólfi og veggjum, upphengdu wc, innréttingu og gólfsturtu með sturtugleri.
Stofa, rúmgóð, parketlögð og björt með gluggum í tvær áttir. Möguleiki að hafa aukaherbergi.
Borðstofa, rúmgóð, parketlögð og björt með útgengið á svalir með einstöku útsýni og eru svalir með svalalokun.
Eldhús, opið við borðstofu/stofu parketlagt og með hvítum + viðarinnréttingum með flísum á milli skápa, uppþvottavél, ískápur, örbylgjuofn og ofn í vinnuhæð.

Húsið, lítur vel út, er gott viðhald á því. Sameiginleg bílastæði eru á lóð við húsið og búið að setja upp rafhleðslustöðvar.

Í kjallara hússins er:
Sér geymsla,
4,8 fermetrar með máluðu gólfi og hillum. 
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu merkt 03 Y og er einstaklega vel staðsett.

Staðsetning eignarinnar er góð í nálægð við helstu þjónustu, verslanir og heilsugæslu í Mjódd ásamt fallegum gönguleiðum.  

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.