Óðinsgata 2, 101 Reykjavík (Miðbær)
105.000.000 Kr.
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
1 herb.
130 m2
105.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1906
Brunabótamat
48.050.000
Fasteignamat
48.860.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 130,1 fermetra atvinnuhúsnæði (gallerí) með veitingaleyfi á frábærum stað við Óðinsgötu 2 í Reykjavík, sem er örfá skref frá Skólavörðustíg. 
Mengi hefur verið með starfsemi í húsnæðinu um árabil og staðið fyrir uppákomum, listsýningum og fjölda annarra viðburða í samstarfi við fjölmarga innlenda og erlenda listamenn.

Eigandi eignarinnar er með veitingaleyfi í flokki 3 - 
"Flokkur 3: Umfangsmiklir áfengisveitingastaðir, svo sem þar sem leikin er hávær tónlist og staðir sem kalla á meira eftirlit og/eða löggæslu.",
https://island.is/rekstrarleyfi-veitingastada/flokkar-og-tegundir-veitingastada er  

Húsnæðið var mjög mikið endurnýjað árið 2013 sbr. upptalningu hér að neðan:
- Skipt um þak á bakhluta húsnæðis
- Húsnæðið allt innréttað upp á nýtt og sett ný gólfefni
- Raflagnir endurnýjaðar og rafmagnstafla
- Nýjar snyrtingar
- Nýjar neysluvatns- og gólfhitalagnir í hluta eignarinnar


Lýsing eignarinnar:
Komið er inn í sal með virkilega stórum og fallegum gluggum sem snúa að Óðinsgötu, flotað gólf og fallegur sjónsteypuveggur, fastar hillur á vegg.
Gengið er niður þrjú þrep í innri hluta sama rýmis en þar eru flotuð og parketlögð gólf og ofanbirta um þakglugga. Aukin lofthæð er í innri hluta salarins.
Tvær snyrtingar eru innaf sal og eru gólf flotuð og salerni vegghengd. Ræstikompa er innaf annarri snyrtingunni og í henni eru inntaksrými.
Innaf sal er einnig eldhús/kaffistofa með flotuðu gólfi, innréttingu góðum gluggum og útgengi á baklóð hússins.  
Snyrting er innaf kaffistofu.

Húsið að utan lítur vel út og er nýlega málað.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á mjög fjölförnum stað, steinsnar frá Skólavörðustíg sem er fjölfarnasta verslunargatan í Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.