Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt, reisulegt og vel staðsett 295,9 fermerta húseign á tveimur hæðum á góðum stað með útsýni yfir fjörðin við Aðalstræti 63 á Patreksfirði. Húsið sem var byggt 1916 og skráð sem skrifstofa bíður upp á mikla möguleika og er með mikla sögu, það hefur verið nýtt sem bæði skóli og bæjarskrifstofur.
Húsið hefur hlotið gott viðhald í gegn um tíðina og samkvæmt seljanda þá er búið að endurnýja neysluvatnslagnir að mestu leiti, setja nýtt vatnsinntak, endurnýja skóplagnir, rafmagn og setja nýja rafmagnstöflu. Einnig er búið að yfirfara flasningar á þaki og setja nýtt járn á bíslag.Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð
Hol, flísalagt.
Eldhús, flísalagt með viðarinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og borðaðstöðu.
Fundarsalur, teppalagður og rúmgóður með viðarklæddum veggjum.
Baðherbergi, flísalagt og eru tvö salerni og handlaug.
Herbergi I, flísalagt.
Gengið upp á aðra hæð um veglegan tekkstiga frá holi.5 herbergi eru á annari hæðinni og öll dúklögð.
Fundarherbergi, dúklagt
Húsið, sem er steinhús er álklætt og það lítur vel út ásamt þakjárni..
Lóðin, sem er 612,0 fermetrar að stærð er eignarlóð og skráð sem viðskipta og þjónustulóð. Hún er með tyrfðum flötum og trjám og bílastæði fyrir 5 bíla.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð og mjög miðsvæðis í bænum þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]