Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu byggingarrétt undir raðhús í 1. áfanga Hnoðraholts í Garðabæ - Hnoðraholt norður. Einnig er til sölu raðhúsalóðirnar Útholt 23-31.
Útholt 33-41- Raðhúsalóðir undir fimm tveggja hæða raðhús.
Útholt 33 - Stærð lóðar er 486,3 fermetrar. Útholt 35 - Stærð lóðar er 307,8 fermetrar. Útholt 37 - Stærð lóðar er 317,4 fermetrar. Útholt 39 - Stærð lóðar er 327,1 fermetrar. Útholt 41 - Stærð lóðar er 531,6 fermetrar.
Tilboð í byggingarrétt lóðanna þarf að berast fyrir kl. 12.00 mánudaginn 23. júní 2025.
Tilboð verða samþykkt með fyrirvara um staðfestingu á breytingu á deiliskipulagi.
Áskilnaður er um reynslu af byggingarframkvæmdum í tilviki tilboða í raðhúsa- og fjölbýlishúsalóðir.
Gatnagerðargjöld og byggingarréttargjald: Gatnagerðargjöld af lóðum eru samkvæmt gjaldskrá Garðabæjar. Tilboðsgjafar gera tilboð í byggingarrétt lóðanna. Byggingarréttargjald innifelur ekki heimæðargjöld veitustofnana, byggingarleyfisgjald, skipulagsgjald, úttektargjald og önnur slík gjöld. Lóðarhafi greiðir umrædd gjöld í samræmi við gjaldskrár sem gilda hverju sinni. Greiðsluskilmálar: Tilboðsfjárhæð fyrir byggingarrétt skal innt af hendi innan 15 daga frá samþykki bæjarráðs Garðabæjar. Gatnagerðargjöld skulu greidd við samþykkt bæjarráðs á byggingaráformum. Þegar tilboðsgjafi hefur greitt kaupverð byggingarréttar telst hann lóðarhafi. Kvaðir vegna framkvæmda: Lóðarhafi skuldbindur sig til að sækja um byggingarleyfi innan 8 mánaða frá tilkynningu um að lóð sé byggingarhæf. Lóðarhafi skuldbindur sig til að hefja framkvæmdir innan 8 mánaða frá samþykki byggingarleyfis. Lóðarhafi skuldbindur sig til að ljúka grófjöfnun lóðar og frágangi við ytra byrði húss innan 24 mánaða frá samþykki byggingarleyfis. Úthlutunarsamningur - ástand lóða: Úthlutunarsamningur verður gerður við lóðarhafa til staðfestingar á samþykki tilboðs í byggingarrétt. Í úthlutunarsamningi verða ákvæði um heimild Garðabæjar til að rifta samningi um úthlutun komi til vanefnda lóðarhafa á greiðslum og skyldum til framkvæmda. Lóðirnar verða afhentar í núverandi ástandi með óhreyfðu landi. Veðheimildir og framsal: Lóðarhafa er, án skriflegs samþykkis Garðabæjar, óheimilt að afhenda, veðsetja eða framselja lóð sem hann hefur fengið úthlutað áður en lóðarleigusamningur hefur verið gerður. Ekki er heimilt að skila lóð, sem hefur verið úthlutað, nema með skriflegu samþykki Garðabæjar. Lóðarleigusamningur: Lóðarleigusamningur verður gerður þegar botnplata viðkomandi lóðar hefur verið úttekin af byggingarfulltrúa. Í lóðarleigusamningi verða ákvæði um ofangreindar kvaðir eftir því sem við á ásamt ákvæði er mælir fyrir um að Garðabær getið látið framkvæma verk á kostnað lóðarhafa sinni hann ekki skyldum sínum samkvæmt lóðarleigusamningi. Jafnframt skal vera ákvæði um dagsektir sem geta numið kr. 10.000.- fyrir hvern þann dag sem líður frá því að lóðarhafi bar að ljúka við grófjöfnun lóðar og frágangi á ytra byrði hússins.
Nánari upplýsingar um skilmála úthlutunar má sjá á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf.
Allar nánari upplýsingar og gögn veitt á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]