Stekkholt 18, 210 Garðabær
Tilboð
Lóð
0 herb.
637 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
14.050.000

Fasteignamarkaðurinn ehf., s. 570-4500 kynnir til sölu byggingarrétt undir einbýlishús í 2. áfanga Hnoðraholts í Garðabæ - Hnoðraholt norður. Hnoðraholt norður. Tvær síðustu einbýlishúsalóðirnar - lóðir nr. 18 og 20.

Hnoðraholt norður er í góðri tenginu við nærliggjandi þjónustu og fyrirhugaður leik- og grunnskóli verður staðsettur miðsvæðis í hverfinu. Hnoðraholtið er einstaklega vel staðsett hverfi þar sem íbúar á öllum aldri geta notið þeirra gæða sem hverfið sjálft og aðliggjandi svæði bjóða upp á. Lögð er áhersla á góðar samgöngutengingar fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur. 

Stekkholt 18 - Einbýlishúsalóð undir tveggja hæða einbýlishús.  Stærð lóðar er 637,0 fermetrar. Byggingarmagn 360 fermetrar. Nýtingarhlutfall 0,6. 

Tilboð í byggingarrétt lóðanna þarf að berast fyrir kl. 12.00 mánudaginn 23. júní 2025.

Tilboð verða samþykkt með fyrirvara um staðfestingu á breytingu á deiliskipulagi.

Gatnagerðargjöld og byggingarréttargjald:

Gatnagerðargjöld af lóðum eru samkvæmt gjaldskrá Garðabæjar. Tilboðsgjafar gera tilboð í byggingarrétt lóðanna. Byggingarréttargjald innifelur ekki heimæðargjöld veitustofnana, byggingarleyfisgjald, skipulagsgjald, úttektargjöld og önnur slík gjöld. Lóðarhafi greiðir umrædd gjöld í samræmi við gjaldskrár sem gilda hverju sinni.
Greiðsluskilmálar:
Tilboðsfjárhæð fyrir byggingarrétt skal innt af hendi innan 15 daga frá samþykki bæjarráðs Garðabæjar. Gatnagerðargjöld skulu greidd við samþykkt bæjarráðs á byggingaráformum. Þegar tilboðsgjafi hefur greitt kaupverð byggingarréttar telst hann lóðarhafi.
Kvaðir vegna framkvæmda:
Lóðarhafi skuldbindur sig til að sækja um byggingarleyfi innan 8 mánaða frá tilkynningu um að lóð sé byggingarhæf. Lóðarhafi skuldbindur sig til að hefja framkvæmdir innan 8 mánaða frá samþykki byggingarleyfis. Lóðarhafi skuldbindur sig til að ljúka grófjöfnun lóðar og frágangi við ytra byrði húss innan 24 mánaða frá samþykki byggingarleyfis.
Úthlutunarsamningur - ástand lóða:
Úthlutunarsamningur verður gerður við lóðarhafa til staðfestingar á samþykki tilboðs í byggingarrétt. Í úthlutunarsamningi verða ákvæði um heimild Garðabæjar til að rifta samningi um úthlutun komi til vanefnda lóðarhafa á greiðslum og skyldum til framkvæmda.
Lóðirnar verða afhentar í núverandi ástandi með óhreyfðu landi. Götur eru frágengnar með teningum við veitukerfi og rafmagn.
Veðheimildir og framsal:
Lóðarhafa er, án skriflegs samþykkis Garðabæjar, óheimilt að afhenda, veðsetja eða framselja lóð sem hann hefur fengið úthlutað áður en lóðarleigusamningur hefur verið gerður. Ekki er heimilt að skila lóð, sem hefur verið úthlutað, nema með skriflegu samþykki Garðabæjar.
Lóðarleigusamningur:
Lóðarleigusamningur verður gerður þegar botnplata viðkomandi lóðar hefur verið úttekin af byggingarfulltrúa. Í lóðarleigusamningi verða ákvæði um ofangreindar kvaðir eftir því sem við á ásamt ákvæði er mælir fyrir um að Garðabær getið látið framkvæma verk á kostnað lóðarhafa sinni hann ekki skyldum sínum samkvæmt lóðarleigusamningi. Jafnframt skal vera ákvæði um dagsektir sem geta numið kr. 10.000.- fyrir hvern þann dag sem líður frá því að lóðarhafi bar að ljúka við grófjöfnun lóðar og frágangi á ytra byrði hússins.

Nánari upplýsingar um skilmála úthlutunar má sjá á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf.

Allar nánari upplýsingar og gögn veitt á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.