Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, mjög bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja 83,0 fermetra íbúð á 2. hæð í góðu þríbýlishúsi á eftirsóttum stað við Seljaveg í Reykjavík. Stór sameiginleg afgirt og fallega ræktuð baklóð og mögulegt að setja svalir útaf stofu til suðurs.
Eignin hefur verið þó nokkuð endurnýjuð á sl. árum skv. upplýsingum frá eiganda:
Klóaklagnir í botnplötu og út fyrir vegg árið 2017
Raflagnir og rafmagntöflur fyrir íbúð og húsið í heild
Ofnar í íbúð hafa verið endurnýjaðir að hluta
Sjálfvirk rafdrifin útloftun frá baðherbergi
Neysluvatnslagnir í húsi að hlutaLýsing eignar:Forstofa/hol, flísalagt og með fatahengi. Á stigapalli fyrir framan íbúð eru fataskápar.
Eldhús, flísalagt og með hvítum innréttingum með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Fallegt útsýni er frá eldhúsi út á sjóinn.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataskápum og fallegu útsýni út á sjóinn.
Baðherbergi, flísalagt gólf, nýleg innrétting og veggskápur, flísalögð sturta með sturtubotni.
Samliggjandi stofur, stórar, bjartar og parketlagðar með fallegum rennihurðum á milli. Mögulegt væri að gera herbergi úr annarri stofunni og einnig er hægt að setja svalir til suðurs útaf stofu.
Í kjallara hússins eru:Sérgeymsla, með glugga, 13,1 fermetri að stærð, nýlega flotað og lakkað gólf, nýlega máluð og með nýlegum lögnum fyrir heitt og kalt vatn.
Sameiginlegt þvottaherbergi, með gluggum, nýlega flotað og lakkað gólf, sér tenglar fyrir hverja íbúð og vinnuborð. Snyrting og sturta, sameiginleg með öllum íbúðum hússins, eru innaf þvottaherbergi.
Sameiginlegur kyndiklefi, með glugga, nýlega flotað og lakkað gólf. Kyndiklefi er m.a. nýttur sem hjólageymsla.
Gangur, með útgengi á sameiginlega baklóð hússins.
Húsið að utan lítur vel út sem og þakjárn.
Lóðin, sem er 225,0 fermetrar að stærð, sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins snýr til suðurs. Lóðin er öll afgirt, skjólsæl, tyrfð og með fallegum gróðri.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]