Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega gott 94,1 fermetra skrifstofuhúsnæði á efri hæð í góðu húsi við Suðurhellu 6 í Hafnarfirði.
Eignarhlutinn er á efri hæð í tveggja hæða húsi og gengið er inn um sameiginlegan inngang á jarðhæð í flísalagða forstofu og þaðan upp steyptan og flísalagðan stiga á efri hæð hússins.
Seljandi er tilbúinn til að skoða skipti á ódýari eign og er mögulega tilbúinn til að taka bifreið upp í kaupverð eignarinnar.Lýsing eignar:Forstofa, flísalögð og rúmgóð. Í hluta forstofu er tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð og vaskur.
Miðrými, parketlagt og rúmgott.
Eldhús, opið við miðrými, parketlagt og með fallegri eldhúsinnréttingu með blástursofni, hellulborði, háfi og tengi fyrir uppþvottavél.
Herbergi I, stórt, parketlagt.
Baðherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting, vegghengt wc. og sturtuklefi.
Herbergi II, stórt, parketlagt.
Húsið að utan lítur vel út og þak er nýlega yfirfarið og lagfært.
Lóðin er fullfrágengin með stóru malbikuðu bílastæði með fjölda bílastæða.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða í netfanginu [email protected]