Efstasund 100, 104 Reykjavík (Vogar)
44.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
49 m2
44.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1954
Brunabótamat
22.150.000
Fasteignamat
42.250.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mikið endurnýjaða og bjarta 49,1 fermetra 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með gluggum í þrjár áttir í 6 íbúða húsi á eftirsóttum stað við Efstasund í Reykjavík.
Íbúðin var endurnýjuð að stórum hluta nýlega. Eldhúsinnrétting og tæki voru endurnýjuð, rafmagnið yfirfarið og endurbætt, gluggar voru málaðir og rafmagnstafla fyrir húsið er nýlega endurnýjuð. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottaherbergi eru í kjallara hússins. Hverfið er fjölskylduvænt og er göngufæri í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Fyrir liggur að húsið þarfnast viðhalds samkvæmt fyrirliggjandi ástandsskýrslu.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð 49,1 fermetri samkvæmt HMS.


Lýsing eignar;
Forstofa, parketlögð með fataskáp.
Herbergi, parketlagt með fataskáp og gluggar í tvær áttir.
Baðherbergi, er með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting og sturtuklefi.
Eldhús, parketlagt, með fallegri nýrri ikea innréttingu með viðarborðplötu, spanhelluborði innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ískáp. Eldhúsið var áður opið við stofu og möguleiki að breyta aftur.
Stofa/borðstofa, björt og rúmgóð, parketlögð með gluggum í tvær áttir. 

Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla,
3,2 fermetra að stærð, málað gólf og hillur.
Sameiginlegt þvottahús, með glugga, steypt gólf og sér tenglar fyrir hverja íbúð.Inn af þvottahúsi er lagnaherbergi.

Húsið, sem er forskalað timburhús með steyptum kjallara, þarfnast viðhalds.

Staðsetning eignarinnar, er góð, þaðan sem er stutt í leikskóla, barnaskóla og alla verslun og þjónustu.

Lóðin, er fullfrágengin, stór og er í óskiptri sameign allra íbúa hússins. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.