Óðinsgata 24, 101 Reykjavík (Miðbær)
74.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í þríbýlishúsi
4 herb.
89 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1919
Brunabótamat
39.600.000
Fasteignamat
69.100.000

Óðinsgata - 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi auk útleigueiningar í formi ósamþykktrar stúdíóíbúðar á jarðhæð, en sú er einnig með sérinngangi og er í útleigu.

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 89,5 fermetra eign í þríbýlishúsi við Óðinsgötu í Reykjavík.  Um er að ræða 61,9 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi auk 27,6 fermetra stúdíóíbúðar á jarðhæð sem einnig er með sérinngangi. 

Íbúðin á 1. hæðinni hefur verið mikið endurnýjuð síðan í nóvember 2024.  Skipt hefur verið að um allt gler og alla glugga á hæðinni og allir veggir einangraðir að innan og klæddir.

Í Fasteignaskrá Íslands er um að ræða eina íbúð með einu fastanúmeri sem breytt hefur verið á þennan máta og eru báðar íbúðirnar í útleigu.  Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2025 er kr. 69.100.000.-

Skv. upplýsingum frá seljendum hefur eftirfarandi verið endurnýjað:

- Ofnar og ofnalagnir í íbúð árið 2012
- Neysluvatnslagnir fyrir íbúðina árið 2012
- Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjuð fyrir íbúðina árið 2012
- Hús að utan múrviðgert og málað árið 2022
- Skipt um þakjárn og þakpappa fyrir fáeinum árum síðan
- Útitröppur múraðar upp á nýtt árið 2022
- Klóaklagnir endurnýjaðar að mestu frá brunni og í gegnum nokkrar lóðir og lítill hluti fóðraður. 
- Allir innveggir á 1. hæð rifnir inn í stein, einangraðir upp á nýtt og klæddir árið 2024
- Skipt um allt gler og glugga á 1. hæð árið 2024


Lýsing eignar:
61,9 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð hússins er með gluggum í þrjár áttir og skiptist þannig:
Forstofa, rúmgóð, flotað gólf og parketlagt og fataskápar.
Herbergi I, parketlagt.
Herbergi II, parketlagt og rúmgott með gluggum í tvær áttir.
Stofa, parketlögð og björt með gluggum í tvær áttir.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt, bjart og rúmgott með góðri borðaðstöðu. Fallegar ljósar viðarinnréttingar með flísum á milli skápa og innbyggðri uppþvottavél.
Vinnukrókur, innaf eldhúsi er parketlagður og þar er lúga í gólfi sem gengur að litlu geymsluplássi á neðri hæð.  Í vinnukrók er tengi fyrir þvottavél.
Baðherbergi, flotað gólf og vaskur og vaskborð úr marmara með hillu undir. Flísalögð rúmgóð sturta. 

Stúdíóíbúð á neðri hæð sem er með sérinngangi og er 27,6 fermetrar að stærð skiptist þannig:
Eldhús, komið er inn í lítið eldhús með nýlegum innréttingum, helluborði og innbyggðum kæli.
Hol, lítið, parketlagt og með glugga. 
Svefnkrókur, innaf holi er parketlagður en gluggalaus. 
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, flísalögð sturta, vegghengt wc, vaskskápur og tengi fyrir þvottavél. 

Húsið að utan virðist vera nýlega viðgert og þakjárn er nýlegt.

Lóðin er fullfrágengin.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum og rólegum stað í Þingholtunum. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.