Hjallabraut 47B, 220 Hafnarfjörður
165.800.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
4 herb.
159 m2
165.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
80.050.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 5704500 kynnir til sölu glæsileg nýbyggð raðhús á tveimur hæðum að Hjallabraut 45-47 í Hafnarfirði. Húsin eru einstaklega vel staðsett í rótgrónu hverfi miðsvæðis í Hafnafirði í göngufæri við Víðistaðatún, skóla, leikskóla og verslun og aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Húsin eru einstaklega vönduð með Free@Home hússtjórnunarkerfi, sjónsteypuveggjum að hluta, vönduðum innréttingum, stórum svölum, verönd og opnu bílskýli. Þau skilast með innréttingum, tækjum, flísalögðum votrýmum og frágangi utanhúss samkvæmt skilalýsingu. Svefnherbergin eru þrjú og tvö baðherbergi ásamt gestasnyrtingu. Afhending er sumar 2025

- Innréttingar frá Brúnás, sýnilegir fletir á innréttingum verða úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum. 
- Borðplötur í eldhúsi verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni.
- Eldhústæki: Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti og innbyggður kæliskápur. Raftæki sem fylgja eldhúsi koma frá Bræðrunum Ormsson. 
-Gólfhitakerfið fylgir frágengið og verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem er hluti af Free@home hússtjórnunarkerfinu
- Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.

Byggingaraðili er traustur verktaki til fjölda ára: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]


Hjallabraut 45-47(raðhús) SKILALÝSING 17.02.2025
1. Frágangur innanhúss
1.1.  Gólfefni

Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Flísabúðinni.
1.2.  Veggir
Útveggir íbúðarinnar eru einangraðir að innan, múraðir og sandsparslaðir. Sjónsteypu innveggir eru meðhöndlaðir með einni umferð að sílan. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af hvítri akrílmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.
1.3.  Loft
Steypt loft eru slípuð og slétt sandspörsluð. Loft eru grunnuð með tveimur yfirferðum af hvítri plastmálningu, gljástig 2% eða sambærilegt. Í þvottahúsi eru loft niðurtekin og klædd rakavarnar gipsplötum. Á baðherbergjum og í þvottahúsum eru loft máluð með viðurkenndri votrýmis málningu. Á völdum stöðum á annarri hæð íbúðarinnar er hluti lofta niðurtekinn og klædd hljóðdúk.
1.4.  Gler
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum BYKO glerframleiðanda. Við kaup íbúðar yfirtekur/taka kaupandi/kaupendur ábyrgð framleiðanda.
1.5.  Stigi
Stigi á milli hæða er svartur stálstigi smíðaður af Stál og Suðu. Í þrepum eru skúffur sem á eftir að setja gólfefni í, kaupandi sér um það sjálfur.
1.6.  Hurðir
Inngangshurðir inn í íbúðina koma frá Byko og fylgja frágengnar. Innihurðir koma frá Birgisson, þær verða yfirfelldar og svartlakkaðar.
1.7.  Fataskápar
Fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum. Innréttingar verða frá Brúnas, sýnilegir fletir á innréttingu verða úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum.
1.8.  Eldhús
Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás. Sýnilegir fletir á innréttingu verða úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum. Borðplötur í eldhúsi verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti og innbyggður kæliskápur. Raftæki sem fylgja eldhúsi koma frá Bræðrunum Ormsson.
1.9. Baðherbergi
Á baðherbergjum er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft eða spartslaðir og málaðir eftir því sem við á. Sýnilegir fletir á innréttingu eru úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum, innrétting verður frá Brúnás. Borðplötur í baðherbergjum verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Undirlímd handlaug ásamt einnar handar blöndunartæki verður í innréttingu eftir því sem við á frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.
1.10.  Þvottahús
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Í þvottahúsi er borðplata harðplastlögð með plastkanti. Niðurfall er í gólfi, og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaðir með hvítri viðurkenndri votrýmismálningu.
1.11.  Geymsla
Loft eru slípuð og slétt sandspörsluð. Veggir eru múraðir og sandsparslaðir. Veggir og Loft eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af hvítri akrílmálningu. Gólf í geymslu verða lögð með epoxy.
1.12.  Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita skv. teikningum. Gólfhitakerfið fylgir frágengið og verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem er hluti af Free@home hússtjórnunarkerfinu
1.13.  Loftræsi-,vatns-og þrifalagnir
Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu, þessu kerfi er skilað fullfrágengið.
1.14.  Rafmagns-og sjónvarpslagnir
Rafmagnslagnir fylgja frágengnar með einum mynddyrasíma í hverri íbúð. Tölvutengill verður í alrými og einnig í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld dimmanleg lýsing fylgir frágengin í alrými skv. teikning. Free@Home hússtjórnunar frá Rafport kerfi fylgir húsinu.
2. Frágangur utanhúss
2.1.  Klæðning og einangrun

Útveggir eru einangraðir með plasteinangrun að innanverðu. Að utanverðu eru veggir múrfiltaðir, grunnaðir og málaðir tveimur umferðum af útimálningu. Sjónsteypu veggir eru meðhöndlaðir með einni umferð af sílan. Sprungur geta myndast á yfirborði múrfiltunar sem verða ekki meðhöndlaðar frekar.
2.2.  Steypt þak
Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypta plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum
tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofaná einangrun kemur vatnsvarnardúkur
með öndun, einangrun er fergt með tvöföldu lagi af torfi. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
Þak yfir bílskýli er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypta plötu kemur tvöfalt lag af
eldsoðnum tjörupappa.
2.3.Svalir
Svalagólf eru steypt og lögð fljótandi flísum frá Álfaborg. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð.
Stigi niður af svölum fylgir ekki. kaupendur hafa þann möguleika á að setja stiga sjálfir á sinn kostnað.
2.4. Gluggar
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Byko. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
2.5. Lóð
Lóð verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í bílastæði og gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Í bakgarði verður timburklæddur pallur.
Einbýlishúsin og raðhúsin deila sameiginlegri lóð, og verður stofnað húsfélag sem sér um rekstur hennar.
3. Handbók hússins
Útbúinn verður sérstök handbók vegna hússins þar sem fram koma helstu upplýsingar um söluaðila efnis sem notað er í húsinu ásamt skýringum á helsta búnaði. Upplýsingar eru oft sóttar á heimsíður hinna ýmsu aðila og geta því slæðst með smávægilegar villur varðandi tæki og búnað þeirra og ber byggingarfélagið ekki ábyrgð á þeim.
Hönnuðir
Arkitektar: Bjarni Snæbjörnsson, bj.snæ arkitektar. Verkfræðihönnun: Vektor Verkfræðistofa Raflagnahönnun: Sigurður Ívar, Tesla. Lóðahönnun: Inga Rut Gylfadóttir, Landslag ehf.
Teikningar
Í kaupsamningi kemur fram hvaða teikningar arkitekts eru í gildi á þeim tíma þegar kaupsamningur er gerður. Á byggingartíma hússins áskilur byggingarfélagið sér rétt til að breyta þessum teikningum í samráði við arkitekt vegna tæknilegra útfærslna sem upp geta komið upp á meðan framkvæmd stendur. Teikningar annarra hönnuða geta líka breyst vegna tæknilegra útfærslna og/eða breytinga vegna búnaðar sem síðar er valinn inn í eða utan á húsið.
6. Byggingaraðili
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is Verkefnastjóri Bygg: Hafþór Hilmarsson, [email protected]
Frekari upplýsingar um efnisval og annað má nálgast hjá verkefnastjóra Byggingarfélagsins.
7. Áætlaður afhendingartími.
Áætlað er að húsin að Hjallabraut verði afhentar á tímabilinu júlí-ágúst 2025.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar.
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda hefur áhrif á afhendingartíma til seinkunnar. Allar breytingar sem kaupendur hafa hug á að gera þarf að gera í samráði við verkefnastjóra skriflega og mun hann meta hvort þær séu framkvæmanlegar. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur fyrir því að bæði viðkomandi söluaðilar efnis ásamt verkefnastjóra byggingarfélagsins séu upplýstir um allar breytingar með pósti ekki með smáskilaboðum. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur vegna viðbótarkostnaðar sem getur myndast hjá byggingarfélaginu vegna þessara breytinga. Byggingarfélagið tekur ekki á sig ábyrgð vegna skemmda sem kunna að verða á búnaði eða efnum sem íbúðareigandi hefur sjálfur sett inn í íbúðina áður en formleg afhending hefur farið fram.
8. Til áréttingar
Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.
Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
Íbúðareigandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum..
Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.
Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa Bygg undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp.
Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.
Hafi kaupandi einhver umkvörtunarefni fram að færa vegna hinnar seldu íbúðar, skal hann strax beina umkvörtun sinni til umsjóna- og tæknistjóra hússins.
Íbúðarkaupendur gera sér grein fyrir að í sérgeymslum og öðrum geymslum geta verið lagnir í loftum og á veggjum sem nauðsynlegar eru vegna lagnaleiða hússins.
9. Mikilvægarupplýsingar til kaupaenda frá seljanda
Í nýjum íbúðum er mikill byggingaraki í steypuvirkinu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum að mestu en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
Þar sem minnst er á gerð tækja í innréttingum í skilalýsingu er átt við tæki af sambærilegri gerð og gæðum. Sama á við um birgja og efnissala. Seljandi áskilur sér rétt til breytinga á byggingartímanum en er þá miðað við sambærilega vöru.
Íbúðareigandi þarf að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum.
Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.
Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.
Ekki er mælst til þess að setja heita potta eða pönnur beint ofan á steinplötur í eldhúsum vegna
sprunguhættu.
Seljandi áskilur sér rétt til að láta breyta teikningum á byggingartímanum í samráði við arkitekta
og hönnuði að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna.
Minniháttar misræmi getur verið á milli teikninga arkitekta, söluteikninga og sérteikninga
innrétting
Seljandi áskilur sér allan rétt til þess að gera efnis-, tæknilegar- og útlitsbreytingar á meðan á
byggingarframkvæmdum stendur.
Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi,
áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni, afhenda fulltrúa BYGG undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp og skal byggingaraðili lagfæra þau atriði eins fljótt og auðið er. Eins eru allar íbúðir yfirfarðar u.þ.b. ári eftir sölu og ef eitthvað þykir ábótavant í þeirri yfirferð og fellur ekki undir eðlilegt viðhald fasteigna skal það lagfært eins fljótt og auðið er.
Við lögn á gólfefnum skal íbúðareigandi yfirfara gólfflöt og ganga úr skugga um að engar misfellur séu til staðar, ef íbúðareigandi verður var við misfellur á gólfflöt íbúðarinnar skal hann koma þeim ábendingum til verkstjóra eða verkefnasjóra BYGG áður en gólfefni eru lögð. Einnig er mælst til
með að sett sé fjaðrandi þéttiefni í fúgu á milli gólfefna og veggja. Fylgja skal fyrirmælum efnissala
við frágang gólfefna.
Í íbúðinni er anhydrít gólf ílögn með gólfhita og verður því að nota varmaleiðandi dúk undir
gólfefni þar sem við á. Í gólfinu getur verið töluverður raki og þá er nauðsynlegt að rakagrunna gólfið áður en niðurlímt gegnheilt parket er lagt á gólf ílögnina.Þegar niðurlímt parket er lagt skal ekki líma niður dúk eða parket undir gólfsíðum gluggum eða þar sem anhydrít slítur sig frá veggjum sökum hljóðleiðni.
Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri og/eða öðrum atriðum sem heyra undir eðlilegt viðhald hússins og almenna umhirðu.
Kaupandi ber ábyrgð á lóð hússins frá lokaúttekt, þ.m.t. gróðri.
Allar breytingar að ósk kaupanda þurfa að fara í gegnum verkefnastjóra á hverjum byggingarstað
og hafa þær áhrif á afhendingartíma til seinkunar. Breytingar geta leitt til kostnaðarauka.
 
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.