Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu glæsilega, bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja 134,2 fermetra útsýnisíbúð með suðursvölum, sér bílastæði í bílageymslu og sérgeymslu í kjallara í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu við Holtsveg í Garðabæ.
Þrjú rúmgóð herbergi, stórt baðherbergi með glugga, rúmgott þvottaherbergi, stórt alrými sem í eru stofur og eldhús og þaðan nýtur einstaklega fallegs útsýnis.
Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð björt og rúmgott með innbyggðum fataskápum.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi, stórt og með glugga. Flísalagt gólf og veggir, innrétting, handklæðaofn, stór flísalögð sturta með sturtugleri og baðkar.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með innbyggðum fataskápum.
Þvottaherbergi, rúmgott og með glugga. Flísalagt gólf og vinnuborð með vaski.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt, bjart og rúmgott. Fallegar og miklar hvítar innréttingar með kvartsteini á borði og innbyggðri uppþvottavél. Stór eyja með góðum hirslum, kvartsteini á borðum og áfastri borðaðstöðu.
Stofa, mjög stór, björt og parketlögð með gluggum í þrjár áttir og útgengi á 10,3 fermetra svalir til suðurs. Frá stofu, eldhúsi og af svölum nýtur virkilega fallegs útsýnis yfir Urriðakotsvatn, að Reykjanesinu og út á sjóinn.
Á jarðhæð hússins eru:Sér bílastæði í opinni bílageymslu þar sem lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöð.
Sérgeymsla, 8,2 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla með útgengi á lóð.
Lóð er fullfrágengin, aðkoma að húsinu er mjög góð og fjöldi bílastæða er á lóðinni.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á fallegum útsýnisstað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.