Mánatún 9, 105 Reykjavík (Austurbær)
129.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
129 m2
129.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2014
Brunabótamat
74.490.000
Fasteignamat
101.000.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandaða, bjarta, fallega og vel skipulagða 129,5 fermetra 3ja - 4ra herbergja íbúð á 6. hæð með tvennum svölum og fallegu útsýni auk tveggja sér bílastæða í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins.
Sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin og inngarður á milli húsanna er virkilega fallegur með harðviðarveröndum, hellulögðum flötum og leiktækjum fyrir börn.  Góð aðkoma er að húsinu frá suðri og fjöldi sameiginlegra bílastæða á lóð.

Fallegar eikarinnréttingar með kvartsteini á borðum, innihurðir úr eik, innbyggð lýsing í loft að hluta og aukin lofthæð.  Tvö sérmerkt bílastæði í bílageymslu og tvennar svalir.


Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og með innbyggðum fataskápum.
Hol, parketlagt.
Borðstofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á mjög rúmgóðar og skjólsælar svalir til suðurs.
Eldhús, opið við borðstofu, parketlagt og bjart með fallegum innréttingum úr með kvartsteini á borðum, innbyggðri uppþvottavél og hvítum efri skápum. Stór eyja með góðum hirslum, helluborði, háfi yfir og áfastri borðaðstöðu.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf, innrétting með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð og vaskur.
Setustofa, parketlögð og stór með útgengi á litlar svalir til norðvesturs.  Frá stofu og af svölum nýtur virkilega fallegs útsýnis út á sjóinn, yfir Reykjavíkurhöfn og að Snæfellsjökli.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi, stórt, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borðum, vegghengt wc, handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri.
Hjónaherbergi, mjög stórt, parketlagt og með miklum innbyggðum fataskápum á heilum vegg.

Í kjallara hússins eru:
Tvö sérmerkt bílastæði með möguleika á rafhleðslustöð.  Stæðin eru hlið við hlið, merkt nr. 15 og nr. 16.
Sérgeymsla, sem er með góðri lofthæð og er 12,2 fermetrar að stærð.
Á jarðhæð hússins er sameiginleg hjólageymsla.

Húsið að utan er klætt með áli og er því viðhaldslítið.

Lóðin, sem er 14.963,0 fermetrar að stærð og er sameiginleg með húsunum nr. 7-17 við Mánatún, er fullfrágengin með stórum inngarði þar sem er fjöldi sameiginlegra bílastæða, stórar harðviðarverandir, stórar hellulagðar verandir og stígar og falleg lýsing.  

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð mjög miðsvæðis þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, miðborgina, Laugardalinn o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.