* Eignin er seld og í fjármōgnun*
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 5704500 kynnir til sölu bjarta, vel skipulagða og þó nokkuð endurnýjaða 2ja herbergja 59,8 fermetra íbúð á 2. hæð með svölum til austurs auk 6,7 fermetra sérgeymslu í kjallara hússins.
Húsfélagið á íbúð í kjallara hússins og er hún í útleigu.
Eignin hefur verið þó nokkuð endurnýjuð á sl árum skv. upplýsingum frá eiganda:
2018 - Eldhúsinnréttingar og tæki endurnýjuð árið
2018 - Gólfefni endurnýjuð árið
2018 - Baðherbergi endurnýjað árið
2018 - Raflagnir og töflur endurnýjuð árið
2019 - Vatns- og frárennslislagnir lagfærðar
2019 - Drenlagnir austan við húsið endurnýjaðar árið
2023 - Herbergi í kjallara í eigu húsfélags breytt í stúdíóíbúð og innréttuð
2024 - Settir upp nýjir póstkassar í stigahús og dyrabjöllukerfi endurnýjað auk þess sem þurrkherbergi var málað
2010 - Baklóð endurnýjuðLýsing eignar:Forstofa / hol, flísa- og parketlagt og með fatahengi.
Eldhús, flísalagt og bjart með nýlegum hvítum innréttingum með viðarborðplötu og innbyggðri uppþvottavél. Áfast matarborð er á vegg.
Svefnherbergi, parketlagt og rúmgott með innbyggðum fataskápum í vegg og útgengi á svalir til austurs.
Baðherbergi, dúklagt gólf, vegghengt wc, vaskskápar og stór sturta með sturtugleri.
Stofa, parketlögð og rúmgóð.
Í kjallara hússins eru:Sérgeymsla, 6,7 fermetrar að stærð.
Sameiginlegt þurrkherbergi, með gluggum, rúmgott og nýlega málað.
Sameiginlegt þvottaherbergi, með glugga og útgengi á baklóð. Sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Sameiginleg hjólageymsla.Sameign er mjög snyrtileg og vel umgengin og teppi á stigahúsi lítur vel út auk þess sem stigahús er nýlega málað.
Húsið að utan þarfnast viðgerða og er ástandsskýrsla vegna eignarinnar fyrirliggjandi á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]