Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, rúmgóða og vel staðsetta 3ja herbergja 76.1 fermetra íbúð í litlu fjölbýli við Barónsstíg í Reykjavík. Sér geymsla fylgir eigninni í kjallara ásamt sér útgeymslu á baklóð. Sameiginlegt þvottahús er einnig í kjallara með tengi fyrir hverja vél. Húsið hefur hlotið gott viðhald í gegnum tíðina samkvæmt seljanda og meðal annars var þak endurnýjað 2021. Samkvæmt HMS er íbúðin 68,0 fermetrar, geymsla 4,9 fermetrar og útigeymsla 3,2 fermetrar.
Eignin skiptist þannig: hol, stofa, borðstofa, eldhús, snyrting, svefnherbergi og baðherbergi. Sameiginleg þvottahús með aðgengi í bakgarð og sérgeymsla er í kjallara ásamt sér útigeymslu.Lýsing eignar:Inngangur, sameiginlegur með dúk á stigahúsi.
Hol, parketlagt með inngengum fataskáp.
Stofa, parketlögð og rúmgóð.
Borðstofa, parketlögð og möguleiki að breyta í herbergi.
Eldhús, parketlagt með hvítmáluðum upprunalegum innréttingum og borðaðstöðu.
Svefnherbergi, parketlagt með fataskáp á heilum vegg.
Snyrting, wc, handlaug og skápur.
Baðherbergi, gengið niður hringstiga frá borðstofu, flísalgt gólf og veggir, baðkar með sturtuaðstöðu, vaskur með innréttingu og er með glugga.
Í kjallara hússins er:Sér geymsla, steypt gólf með hillum.
Sameiginlegt þvottahús, málað gólf, hver með tengi fyrir sína vél og útgengið á baklóð.
Sér útigeymsla, er á baklóð.
Lóðin er fullfrágengin með aðgengi í garð bakatil og þaðan á sameiginlega baklóð með aðgengi út á Snorrabraut.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í miðbæ Reykjavíkur þaðan sem örstutt er í Sundhöllina, leikskóla, grunnskóla, verslanir, veitingastaði og menningu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]