Helluvað 13, 110 Reykjavík (Árbær)
69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
84 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2007
Brunabótamat
48.680.000
Fasteignamat
64.550.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir í einkasölu glæsilega útsýnisíbúð, 84,8 fermetra með stórum suðursvölum á 5. og efstu hæð í þessu glæsilega fjölbýlishúsi á mörkum Elliðavatns, Heiðmerkur og Rauðavatns. Sér bílastæði með rafmagnstengi í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með sameiginlegri þvottaaðstöðu fyrir ökutækið er í kjallara hússins ásamt góðri sér geymslu, sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu. 

Útsýni frá eigninni er stórglæsilegt. Til suðurs að Bláfjöllum, yfir Heiðmörk og Elliðavatn frá stórum suðursvölum og frá stofu. Frá svefnherbergi er útsýni að Rauðavatni, Lyngdal og Hólmsheiði. 


Lýsing eignar:
Inngangur/Hol, Parketlagt, og góður innbyggður fataskápur.
Hjónaherbergi, parketlagt, góðir fataskápar.
Barnaherbergi, parketlagt með fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting með skúffum, baðkar með sturtu, vegghengt salerni. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi.
Eldhús, parketlagt, opið við stofu og borðstofu, háfur, innbyggð uppþvottavél, granít á eldhúsborði, upprunaleg innrétting máluð og flísar á milli.
Stofa/borðstofa, björt og rúmgóð, parketlögð. Glæsilegt útsýni frá stofu og gengið út á svalir. 
Svalir, stórar svalir með glæsilegu útsýni til suð-suðvesturs að Bláfjöllum, yfir Heiðmörk og Elliðavatn.

Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla, rúmgóð 11,5 fermetra geymsla, máluð gólf og hillur.
Sér bílastæði B04, í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með rafmagnstengi fyrir rafbíl og rampurinn er einnig með hitalögn. Bílaþvottaaðstaða er í bílageymslu.
Sameiginlegt þvottahús, máluð gólf.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með útgengi á lóð.

Húsið að utan: er forsteypt steinhús og lýtur vel út.

Sameign, er öll hin snyrtilegasta, inngangur flísalagður og stigahús er teppalagt.
 
Staðsetning eignarinnar er góð, þar sem er stutt í leikskóla, barnaskóla og náttúruna allt um kring

Lóðin, er fullfrágengin með snyrtilegum garði. Góð aðkoma er að húsinu. Inngangar eru í húsið bæði að fram- og baklóð þess.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.