Skúlagata 20, 101 Reykjavík (Miðbær)
78.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
77 m2
78.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1997
Brunabótamat
48.220.000
Fasteignamat
75.150.000
Opið hús: 23. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Skúlagata 20- 3ja herbergja útsýnisíbúð á 9. hæð með tvennum svölum og stæði í bílageymslu. Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning. Opið hús miðvikudaginn 23. október milli kl. 17.00 - 17.30. Verið velkomin.

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega 77,7 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð á 9. hæð með tvennum svölum auk sér bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með rafhleðslustöð í þessu eftirsótta húsi fyrir eldri borgara við Skúlagötu 20 í Reykjavík.  Íbúðin er nýmáluð að innan, granít er í gluggakistum og íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.

Húsvörður er í húsinu, tvær lyftur í þessum hluta hússins og myndavéladyrasími.  Eignina má eingöngu selja félögum í Félagi eldri borgara sem eru 60 ára og eldri.

Útsýni frá íbúðinni er m.a. út á sundin, innsiglinguna í Reykjavíkurhöfn, að Akrafjalli, Esjunni og víðar. Húsvörður er í húsinu og í næsta húsi er ýmiskonar þjónusta og afþreying fyrir eldri borgara, sem íbúar í Skúlagötu 20 hafa aðgang að. Í húsinu við hliðina rekur Reykjavíkurborg Vitatorg, þjónustu fyrir eldri borgara, og þar er í boði m.a. matur og ýmiss félagsstörf, sjá nánar: https://reykjavik.is/stadir/lindargata-59-samfelagshus


Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og með innbyggðum fataskápum.
Sjónvarpsstofa, parketlögð og með gluggum til vesturs og frábæru útsýni. Úr sjónvarpsstofu er útgengi á yfirbyggðar opnanalegar flísalagðar svalir til vesturs með virkilega fallegu útsýni út á sjóinn og yfir borgina.
Svalir I, snúa til vesturs, flísalagðar, yfirbyggðar og opnanlegar. Glæsilegt útsýni út á sundin, Reykjavíkurhöfn og víðar.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt, opnanlegur gluggi til vesturs, fallegar sprautulakkaðar + viðarinnréttingar með flísum á milli skápa, innbyggðri uppþvottavél og graníti á borðum.  
Stofa, rúmgóð, björt og parketlögð með gluggum til vesturs og norðurs og glæsilegu útsýni. Úr stofu er útgengi á svalir til norðurs sem eru flísalagðar, yfirbyggðar og opnanlegar. 
Svalir II, snúa til norðurs, flísalagðar, yfirbyggðar og opnanlegar. Glæsilegt útsýni út á sundin, að Esjunni og austur yfir borgina.
Svefnherbergi, parketlagt og rúmgott með góðum innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi, nýr stamdúkur á gólfi og flísalagðir veggir, dúklögð gólfsturta með flísalögðum veggjum, góð innrétting með marmara á borði og tengi fyrir þvottavél og góðir skápar á vegg. 

Sér bílastæði, í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með rafhleðslustöð og sameiginlegri þvottaaðstöðu fyrir bíla.  Stæðið er merkt 23.
Sér geymsla, er í kjallara hússins, 4,5 fermetrar að stærð og merkt 903. Málað gólf og hillur.

Á 1. hæð hússins er samkomusalur með eldhúsi og snyrtingum sem er í sameign íbúða hússins og íbúar geta leigt gegn vægu gjaldi. Útgengi er á sameiginlegar svalir til austurs frá hæðinni með afar fallegu útsýni út á sundin og yfir austurhluta miðborgarinnar.  Einnig er húsvarðaríbúð í húsinu sem er í sameign íbúða hússins.

Góð aðkoma er að húsinu frá Lindargötu með bílastæðum ásamt því að bílastæðahúsið við Vitatorg stendur í næsta nágrenni.  Tvö sameiginleg rafhleðslustæði eru á lóðinni.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.