Valshlíð 2, 102 Reykjavík
106.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
5 herb.
121 m2
106.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
69.910.000
Fasteignamat
93.650.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega og vel skipulagða 121,9 fermetra 5 herbergja íbúð á 1. hæð með rúmgóðri skjólsælli viðarverönd til suðurs og sérafnotareit á lóð í mjög góðu og vinsælu fjölbýlishúsi með lyftu við Valshlíð 2 á Hlíðarenda í Reykjavík.  Íbúðinni fylgir sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með hleðslustöð fyrir rafbíl. 

Fjögur svefnherbergi, bæði gestasnyrting og baðherbergi, sér þvottaherbergi innan íbúðar og fallegt harðparket á gólfum sem lagt er í fiskibeinamynstri.

Virkilega góð staðsetning í göngufæri við miðborgina, íþróttasvæði Vals, Mjölni, mennstastofnanir, stóra vinnustaði og fallegar gönguleiðir.  Stór sameiginlegur inngarður með leiktækjum fyrir börn.


Lýsing eignar:
Forstofa/gangur,
parketlagður og með góðum fataskápum.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf og skápar.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með miklum fataskápum á heilum vegg.
Gestasnyrting, innaf gangi, flísalagt gólf og veggskápur.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum til suðurs og útgengi á rúmgóða og skjólsæla viðarverönd til suðurs og þaðan á stóra sameiginlega lóð. Á verönd nýtur sólar frá því um 10.30 á morgnana og fram til um kl. 17 á daginn.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með miklum fallegum hvítum innréttingum. Í innréttingu eru innbyggður ísskápur með frystihólfi og innbyggð uppþvottavél. Spanhelluborð með hangandi háfi yfir og mikið borðpláss.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi III, parketlagt og stórt með fataskápum.
Baðherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, innrétting og vegghengt wc. 

Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu,
merkt N014, rúmgott og vel staðsett og búið að setja upp rafhleðslustöð.
Sérgeymsla, sem er 9,3 fermetrar að stærð með mikilli lofthæð og virkilega góðu plássi fyrir hillur.
Sameiginleg hjólageymsla, mikil lofthæð og lakkað gólf.

Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og afar vel umgengin og húsið að utan er klætt með áli og lítur mjög vel út.

Lóðin er fullfrágengin.  Stór sameiginlegur skjólsæll inngarður með leiktækjum fyrir börn og stórum tyrfðum flötum og aðkoma að húsinu er góð.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.