Ásendi 1, 108 Reykjavík (Austurbær)
199.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
8 herb.
323 m2
199.500.000
Stofur
4
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1966
Brunabótamat
157.650.000
Fasteignamat
168.650.000

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu Ásendi 1 - Mjög reisulegt einbýlishús, vel staðsett í Reykjavík. Húsið var mikið endurnýjað og byggð við það viðbygging árið 1996. Öll hönnun var unnin af Stúdíó Granda.

Húsið sem er að mestu á einni hæð skiptist í anddyri, stofu, borðstofu, sjónvarpsherbergi, hjónaherbergi með sér baðherbergi, eldhús, gestasalerni, þvottahús, herbergi og vinnustofu. Á efri hæð eru tvö barnaherbergi, baðherbergi og hol með lítilli eldhúsinnréttingu. Lóðin er gróin með afgirtum garði og verönd. Allar gangstéttar og bílastæði eru með snjóbræðslu.


Nánari lýsing: Við inngang er rúmgott anddyri með lokuðu fatahengi og gestasnyrtingu. Þar er mjög fallegt steinlagt, slípað gólf úr graníti, sem tekur við af samskonar granítsteini í gangstíg að húsinu. Stór borðstofa og stofa með gegnheilu Iroko-parketi lagt í fiskibeinamunstur. Ofnar eru faldir í gólfi með rist yfir. Út frá stofunni er stór rennihurð út á aflokaða timburverönd. Hol sem tengir stofur og eldhús er nýtt að hluta sem vinnuaðstaða. Úr holinu er gengið í sjónvarpherbergi sem einnig er lagt gegnheilu Irako-parketi (má breyta í 1-2 barnaherbergi). Þar innaf er hjónaherbergi með samskonar parketi og fallegum gamaldags ofni. Innaf hjónaherbergi er rúmgott baðherbergi og fataherbergi. Bæði sturta og baðkar eru í baðherbergi, marmari á veggjum. Úr hjónaherbergi er útgengi á afgirta, lokaða timburverönd, sömu og út frá stofunni. Eldhús er með hvítri innréttingu, granítborðplöðtu og ágætum borðkrók. Á gólfi er granít, hægt að ganga í eldhús bæði úr anddyri og úr borðstofu/holi. Sér gangur með gestasalern. Rúmgott þvottahús með útgengi út á lóðina. Í anddyri er parketlagður stigi upp á efri hæð, þar er nýbygging sem byggð var ofan á fyrrum bílskúr. Þar er komið inn í hol með lítilli innréttingu með innbyggðum ísskáp, borðplata úr slípuðu grágrýti, einnig er lítið barborð úr slípuðu grágrýti. Úr þessu holi er gengið út á suðursvalir með útsýni. Tvö mjög stór, parketlögð herbergi með góðum skápum. Baðherbergi er lagt mosaíkflísum í hólf og gólf. Þar er sturta, afstúkuð með grágrýtisfleka, borðplata úr sama efni. Af efri hæðinni er sérsmíðuð renna fyrir óhreinan þvott niður á neðri hæðina. Bílskúrinn er í dag innréttaður sem tvö stór herbergi, annað nýtt sem svefnherbergi, hitt sem vinnustofa, á gólfum er gólfdúkur. Auðvelt er að breyta bílskúrnum aftur í upprunaleg not. 

Lóð er 787 fermetrar að stærð, gróin, með afgirtum suðurgarði sem hægt er að ganga út á bæði úr stofu og hjónaherbergi. Bílaplan og göngustígur að inngangi er lagt í bland með rauðum steini, timbri og tilhöggnum granítsteini. Fyrir ofan inngang er listaverk eftir þekkta listakonu, sem fylgir húsinu. Allt grágrýti er íslenskur steinn. Húsið var mikið endurnýjað 1996 og byggt við á mjög smekklegan hátt. Arkitektar viðbyggingar voru Studíó Granda. Gott hús í grunninn og vel vandað til verka, en kominn tími á almennt viðhald.   

Allar nánari upplýsingar og tímapantanir á skoðun eignarinnar er að fá á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.