Víðiholt 3, 225 Garðabær
74.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
107 m2
74.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
137.150.000

Fasteignamarkaðurinn ehf kynnir í sölu Víðiholt 3, 225 Garðabær,um er að ræða 25 íbúða fjölbýli á 3 hæðum á frábærum stað miðsvæðis á Álftanesi. Allar íbúðir með sérinngang - Lyfta er í húsinu , 3 -4 svefnherbergi.

Verð frá 74.000.000 - 89.900.000 


Sjá vef verkefnis hér : https://vidiholt.is/ibudir/

Bókaðu skoðun hjá [email protected] 

Áætluð afhending er í febrúar 2025.  Byggingaverktaki:  Jáverk.


Hönnuðir og ràðgjafar
Arkitektar og aðalhönnuðir: Arkís arkitektar
Verkfræðihönnun: Verkfræðistofa Reykjavíkur
Landslagshönnun: Landslag
Verktaki: JÁVERK

Íbúðum er skilað samkv skilalýsingu, fullbúnum með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III samkvæmt skilalýsingu en án gólfefna að undanskildu anddyri og baðherbergi sem eru flísalögð. Íbúðir sem hafa þvottahús eru með flísalögðu gólfi. Hefðbundið ofnakerfi er í íbúðum samkvæmt teikningum lagnahönnuða.
Innihurðir: Hurðir eru hefðbundnar yfirfelldar hurðir. Innihurðir eru sprautulakkaðar hvítar frá Ebson eða sambærilegt.
Gólf á baðherbergi og anddyri eru flísalögð með gæðaflísum í ljósgráum lit (Limestone frá Ebson) í stærðinni 30x60cm. Öðrum rýmum íbúðar er skilað án gólfefna.
Eldhús: Innrétting í eldhúsi er sérsmíðuð frá innréttingarframleiðandanum Voké-III. Yfirborð hurða- og skúffuforstykkja er úr slitsterku harðplasti frá Kronospan/Egger sem er þægilegt í umgengni og viðhaldi. Borðplötur í eldhúsi eru úr HPL (high pressure laminate) með yfirborði samkvæmt þema að ofan. Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp með frysti, framhliðar fylgja með en ekki tæki.
Eldhústæki: Eldhús skilast með eftirfarandi vönduðum innbyggðum eldhústækjum. Eldhús skilast með veggofni og span-helluborði. Tæki eru Electrolux eða sambærilegt. Íbúðum er skilað til kaupanda án gufugleypis, kæli-/frystiskáps og uppþvottavélar.
Eldhústæki er vandað tæki, Hansgrohe Vernis. Eldhúsvaskur er vandaður vaskur frá Ukinox í stærð 50x50cm.
Baðherbergi er með sturtu og skilast með sturtugleri með slá. Innrétting er sérsmíðuð frá innréttingarframleiðandanum Voké-III.
Gert er ráð fyrir tengi fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara á baðherbergi í íbúðum sem eru ekki með þvottahús.
Fataskápar eru sérsmíðaðir frá innréttingarframleiðandanum Voké-III og ná upp í loft. Litur er samkvæmt þema að ofan.
Anddyri: vandaður breiður fataskápur með hillu, slá og innri skúffum.
Hjónaherbergi: Vandaður þrefaldur breiður skápur með hillu, slá og opnu rými eða innri skúffum.
Barnaherbergi: Vandaður breiður skápur með hillu, slá, og innri skúffum.
Í íbúðum sem eru með þvottahús er lítil innrétting með tveimur skúffum og borðplötu með vask og blöndunartæki.
Útveggir eru staðsteyptir, einangraðir að utan með 125mm einangrun. Undirkerfi er úr áli og veggir klæddir með viðhaldslítilli báru-álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald hússins, litur klæðninga er samkvæmt arkitekt. Á völdum stöðum er hitameðhöndluð fura sem sameinar fallegt útlit, endingu og þol gagnvart íslenskri veðráttu.
Gluggar eru verksmiðjuframleiddir ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Rationel með slitinni kuldabrú. Gler er tvöfalt k-einangrunargler. Útihurðir eru einnig frá Rationel.
Frágangur lóðar er í samræmi við lóðahönnun landslagsarkitekts. Engin leiktæki eru útveguð eða sett upp á lóð af verktaka. Hjólagrindum verður komið fyrir á lóð nálægt inngöngum húsa. Hellulagðir eru sérafnotareitir íbúða á jarðhæðum. Gengið er frá grasi á lóð, engin trjágróður eða beð fylgir lóð.
Snjóbræðsla er að og í bílastæðum hreyfihamlaðra, í aðal aðkomuleiðum að inngöngum á 1.h og í útistigum samkvæmt teikningum lagnahönnuða.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Sérgeymslur á jarðhæð. Íbúðum á 1 hæð fylgir sérafnotaflötur. 


Víðiholti 3 er þriggja hæða fjölbýlishús með lyftu. Í húsinu eru 25 vel skipulagðar þriggja til fjögurra herbergja íbúðir, leitast er við að nýta vel hvern einasta fermeter.
Allar íbúðir hafa sér innganga, íbúðir á 1.hæð inn frá lóð en íbúðir á 2 og 3.hæð um utanáliggjandi svalaganga. Lyftuhús er staðsett við miðju hússins, hvoru megin við lyftuhús er opinn stigi.
Allar íbúðir eru á einni hæð með anddyri, salerni, eldhúsi, stofu og íverurýmum ásamt svölum eða sérafnotareit.
Fjölbýlishúsin eru staðsteypt, einangruð að utan og klædd með veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.


Örstutt í leikskóla, skóla og sundlaug.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Már Alfreðsson Lögg. fasteignasali, í síma 6158200, tölvupóstur [email protected].

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.