Kópavogsbraut 59, 200 Kópavogur
99.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
5 herb.
104 m2
99.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
67.750.000
Fasteignamat
93.050.000

Eignin er seld er seld með fyrirvara um fjármögnun.

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu glæsilegt og vandað parhús með fallegu útsýni á góðum stað á Kársnesi. Húsið sem er 104,3 fermetrar er á tveimur hæðum og byggt úr gegnheilum timbureiningum 2022. Húsin eru einstaklega vel hönnuð og fermetrar vel nýtir. Gólfhiti er á báðum hæðum og aukin lofthæð á efri hæð. Sér bílastæði er fyrir tvo bíla á upphitaðri hellulagðri stétt við húsið og verönd út af stofu til vesturs ásamt svölu frá herbergi á annari hæð.


Húsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, gestasnyrtingu, 3 svefnherbergi, hol, þvottahús, og 2 geymslur.

Nánari upplýsingar í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Lýsing eignar:

Forstofa, parketlögð og með fataskáp.
Gangur, parketlagður.
Baðherbergi, flísalagt gólf, flísalögð sturta, upphengt wc, innrétting og er með glugga.
Geymsla, málað gólf og er undir stiga.
Herbergi 1, parketlagt með gluggum í tvær áttir og fataskáp.
Stofa /borðstofa, er í einu rými parketlagt, opið við eldhús og gengið út á verönd til vesturs.
Eldhús, parketlagt, rúmgott með hvítri innréttingu, spanhelluborði, viftu, tengi fyrir uppþvottavél og góðri vinnuaðstöðu.
Efri hæð er með aukinni lofthæð og gengið er upp fallegan parketlagðan stiga.
Hol,
parketlagt.
Herbergi 2 , parketlagt og með fataskáp.
Hjónaherbergi, parketlagt og með fataskáp á heilum vegg og gengið út á svalir til vesturs með fallegu útsýni.
Baðherbergi, rúmgott með glugga, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc, flíslögð sturta, og innrétting.
Þvottaherbergi, með parketlögðu gólfi, innréttingu undir vélar og glugga.
Geymsla, parketlögð með glugga og er inn af þvottaherbergi.

Lóðin, sem er sameiginleg með öðrum eignum á lóðinni, er snyrtileg, fullfrágengin með tyrfðum flötum og afgirt allt um kring. Sér bílastæði fyrir tvo bíla á upphitaðri hellulagðri stétt er við húsið. Sér pallur er bakatil gengið frá stofu og eldhúsi

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á Kársnesinu í göngufæri við Kársnesskóla, leikskóla, sundlaug Kópavogs, Gerðasafn og aðra verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.